Orðið sessor er skrifað með bláum stöfum á hvítum bakgrunni.

Verkefnastjórnunarkerfi

Hópur fólks situr við borð á skrifstofu og heldur fund.

 Hvaða kerfi er best?  

Öflugar verkefnastjórnunarlausir gera nú rekstraraðilum  kleift að skilgreina störf og setja inn reglubundin verk sem hver starfslýsing innifelur. Þetta gerir rekstraraðilum kleift að tryggja að öllum mikilvægum þáttum sé sinnt og að grunnþekking helst innan fyrirtækisins þrátt fyrir starfmannabreytingar. Gott verkefnastjórnunarkerfi hjálpar stjórnendum einnig að binda niður það verklag sem starfsmenn fylgja við úrvinnslu á hinum ýmsum verkefnu. Þannig er hægt að sjá til þess að öll verkefni vinnist á sem skemmstum tíma og á sem skilvirkastan máta.  

Það er til heill frumskógur af verkefnastjórnunarlausnum, sem hver hefur sinn styrkleika og mismunandi virkni. Sú spurning sem verkefnastjórar og stjórnendur standa oft frammi fyrir er hvaða kerfi er best að velja? Er það CrewBrain eða MondayTrello eða Bootcamp? AsanaCaptureWrike, Todoist, SmartsheetTeamworkProworkflow, Teamgantt, Planner eða Kanbanflow?  

Hvað er gott að hafa í huga við val á réttu kerfi?

Vanda þarf valið á þeirri verkefnastjórnunarlausn sem notast á við. Tíminn sem fer í uppsetningu og innleiðingu á kerfinu er dýrmætur. Ef rangt kerfi verður fyrir valinu geta miklir fjármunir og tími verið í húfi. Við val á lausnum fyrir  verkefnastjórnun ber  að hafa í huga ýmsa þætti. Til að byrja með er mikilvægt að íhuga hvort að lausnin gef i góða heildarsýn yfir öll þau verkefni sem eru í gangi hverju sinni. Yfirsýnin þarf einnig að vera yfir þau verkefni sem hafa verið í gangi  og öll möguleg framtíðarverkefni. 

Gott er ef verkefnastjórnunarlausnin gefur stjórnendum fljótt og auðveldlega heildarsýn yfir allan kostnað vegna verkefnis og framtíðar kostnað. Góð lausn styður alla þá hagsmunað ila sem að verkefninu koma, hvort svo sem um er að ræða viðskiptavini, verktaka, eða undirverktaka. Góðar aðgangsstýringar þufra að vera til staðar innan kerfisins til þess að halda utan um allan þennan fjölda af  einstaklingum. Þannig er hægt að tryggja að engin gögn falli í hendur óviðkomandi aðila.  

Þegar margir aðilar starfa saman er mikilvægt að lausnin bjóði upp á góða samskiptamöguleika. Bæði þarf lausnin að geyma skjöl og upplýsingar og miðla því á auðveldan hátt. Hvert og eitt verkefni getur haft misjafnar þarfir og kröfur á stýringu innan verkstjórnunarlausnar.  Sum verkefni hafa fasta mílusteina sem nauðsynlegt er að fylgjast með að náist. Tímarammi innan verkefna og verkhluta er nauðsynlegur fyrir framgang verkefnisins. Önnur verkefni eru tilfallandi og gerast eingöngu einu sinni. Þá eru þau ekki endilega með fasta tímaramma. Enn önnur verkefni eru reglubundin verkefni sem muna þarf að sinna t.d. mánaðarlega, árlega, eða t.d. á þriggja ára fresti .  

 Hvers vegna er sniðugt að nota verkefnastjórnunarkerfi?

Ef ekki er haldið vel utan um öll þau verkefni sem sinna þarf, þá eykst öll áhætta og tilheyrandi kostnaður þar á bakvið. Það er gott að geta metið þessa áhættu innan verkefna. Gott utanumhald tryggir að kostnaður fari ekki framúr áætlun. Góð verkefnastjórnunarlaus heldur einnig utan um tímaramma allra verkefna. Þannig er hægt að gera reksturinn skilvirkari og hagkvæmari. Mikilvægt er að kerfin geti haldið utan um upplýsingar og skrár verkefna.    

Öflugar aðgangsstýringar þurfa að vera til staðar  til að koma í veg fyrir að viðkvæmar upplýsingar falli í hendur þriðja aðila.   Svo allar öryggis- og aðgangsstillingar séu sem skilvirkastar þá þarf verkefnastjórnunarlausnin að geta flokkað alla hagsmunaaðila á sem nákvæmastan hátt, en  á auðskiljanlegan máta. Í heimi sem nýtir tæknina í sífellt meira mæli, er mikilvægt að tryggja að lausnin styðji samþættingar við öll þau helstu kerfi sem verið er að nota í rekstrinum dags daglega.    

Við hjá  Sessor höfum lagt mikla vinnu í að rannsaka þennan frumskóg af verkefnastjórnunarlausnum. Við bjóðum rekstraraðilum uppá aðstoð við að velja rétt kerfi, hanna verklagið og innleiða það þannig að kerfið nýtist rekstraraðilum til árangursRéttur hugbúnaður getur verið stórt skref í áttina að því að skapa samkeppnisforskot.

Eftir Lena Brynjarsdóttir 5. mars 2025
Við erum spennt að tilkynna opnun nýrrar starfsstöðvar í Vestmannaeyjum. Með því styrkjum við þjónustu okkar fyrir fyrirtæki í Eyjum og á Suðurlandi og veitum betra aðgengi að sérhæfðri ráðgjöf í fjármálum, bókhaldi og upplýsingatækni. Starfsstöðin verður í Þekkingarsetrinu í Vestmannaeyjum, og við erum stolt af því að Björg Hjaltested hefur gengið til liðs við okkur sem rekstrarstjóri starfsstöðvarinnar. Hún mun leiða starfsemina og styðja fyrirtæki á svæðinu með sérhæfðri ráðgjöf og lausnum sem styrkja fjármálastjórnun og tryggja skilvirkara flæði upplýsinga í rekstri.
Arna Dan Guðlaugsdóttir
Eftir Lena Brynjarsdóttir 17. febrúar 2025
Sessor eflir þjónustu sína í aðfangastýringu með ráðningu Örnu Guðlaugsdóttur. Arna hefur víðtæka reynslu af innkaupaferlum, birgðastýringu og vöruhúsarekstri og hefur starfað hjá fyrirtækjum á borð við Controlant, Bioeffect og Krónuna. Þar hefur hún unnið með alla þætti aðfangastýringar, allt frá stefnumótun, innkaupaáætlunum til rekstrar vöruhúsa og nýtingar birgða. Þekking hennar á ferlastýringu, sjálfvirknivæðingu og gagnaöflun í rekstri fellur vel við þjónustu Sessor og styður við þróun lausna sem auka skilvirkni og bæta rekstraryfirsýn viðskiptavina.
Eftir Lena Brynjarsdóttir 8. nóvember 2024
Nýtt ár býður upp á einstakt tækifæri til að staldra við og skoða hvernig tæknin styður við daglegan rekstur fyrirtækisins. Eru kerfin og verkfærin að mæta þörfum okkar eða er eitthvað sem mætti fínstilla til að gera vinnuflæðið einfaldara og skilvirkara? Stundum er besta leiðin að bæta það sem þegar er til staðar, en í sumum tilvikum er rétt að skoða hvort nýjar lausnir gætu hjálpað betur við að ná settum markmiðum.
Karl og kona sitja við borð og horfa á blað.
30. maí 2024
Á síðustu árum hefur útvistun upplýsingatæknistjóra (CIO - Chief Information Officer) og annarra stjórnendastaða orðið síalgengari. Með sívaxandi kröfum um tækninýjungar og öryggi leita mörg fyrirtæki leiða til að hámarka skilvirkni og lágmarka kostnað. Útvistun upplýsingatæknistjóra hefur reynst vera áhrifarík lausn í þessu samhengi...
Sjá meira

Viltu vita meira?

Við erum hér til að finna lausn sem hentar þér. Við bjóðum frían kynningarfund – hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.

Hafa samband
Karl og kona eru að horfa á spjaldtölvu saman.

Umsagnir

Lógó fyrir radix er sýnt á hvítum bakgrunni.
9. júlí 2023
Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er það mikil áskorun að geta fylgst með og haldið í við þá þróun sem á sér stað upplýsingatækni og viðhaldi kerfa. Mikil sérþekking á...
Hk lógóið er í bláum hring á hvítum grunni.
11. ágúst 2021
Frá apríl 2019 hafa ráðgjafar Sessor aðstoðað okkur við endurskipulagningu á fjármáladeild félagsins með áherslu á fullnýtingu kerfa og breyttu verklagi. Frá því að samstarfið hófst hefur HK farið úr...
Blátt og hvítt lógó fyrir rikislogreustjori
22. júlí 2021
Vegna mikilla breytinga og nýrra verkefna þá stóð embætti Ríkislögreglustjóra frammi fyrir nýjum áskorunum í tölvumálum. Sessor var fengið að borðinu til að fara með hlutlausum hætti yfir núverandi stöðu...
Share by: