SIGNUP SOFTWARE

Exflow

Blá skuggamynd af fótspori á hvítum bakgrunni.
Svart og appelsínugult lógó með bókstafnum n í miðjunni

Sjálfvirknivæðing fjármálaferla

SignUp Software hefur sérhæft sig í lausnum sem styðja við faglega og gagnadrifna fjármálastjórn. Með áherslu á sjálfvirkni og rekjanleika eru lausnir fyrirtækisins hannaðar til að einfalda flókin ferli og styðja við öfluga innviði í fjármáladeilda.


ExFlow er lausn frá SignUp Software sem sjálfvirknivæðir afgreiðslu innkaupareikninga í Microsoft Dynamics 365 Business Central – frá móttöku til bókunar. Lausnin byggir á fyrirfram skilgreindum reglum sem stýra flæði reikninga í gegnum úthlutun, samþykktir og bókun. Kerfið nýtir skráð gögn til að tengja reikninga við lánardrottna, samninga og bókunarstýringar. Þannig dregur ExFlow úr handavinnu, tryggir hraðari afgreiðslu og léttir álagi af stjórnendum með skilvirkari samþykktum reikninga.

Þróaðar bókunarstýring

Exflow sjálfvirknivæðir bókunarstýringar, styðst við fyrri stýringar og innkaupakóða með fyrirfram skilgreindum reglum sem flýtir vinnslu og eykur nákvæmni.

Sjálfvirkar samþykktir

Samþykktir reikninga geta verið sjálfvirkar með fyrirfram skilgreindum reglum og samningum sem dregur úr vinnu samþykktaraðila.

Rauntíma yfirsýn

Öll reikningaferli eru sýnileg í rauntíma sem gerir stjórnendum kleift að fylgjast með stöðu reikninga með einföldum hætti.

Samræming og stýring

Exflow tryggir að allar samþykktir séu rekjanlegar með fullu eftirliti yfir samþykktarferli.

Viltu vita meira?

Við hjálpum fyrirtækjum að hámarka nýtingu lausna með faglegri ráðgjöf og markvissri innleiðingu. Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þínu fyrirtæki.

Hafa samband