Orðið sessor er skrifað með bláum stöfum á hvítum bakgrunni.

STÆRRI

REKSTRARAÐILAR

Tveir menn sitja við borð og horfa á klemmuspjald.
Maður stendur í verksmiðju og horfir á klemmuspjald.

Stjórn og skipulag í

hverju skrefi

Þjónusta fyrir stærri rekstraraðila

Við hjá Sessor leggjum áherslu á að veita stærri fyrirtækjum áreiðanlega og kostnaðarhagkvæma þjónustu og ráðgjöf, sem er hönnuð til að styðja við uppbyggingu og þróun fyrirtækisins þíns. Við bjóðum lausnir sem mæta sérstökum þörfum þinnar starfsemi og leggjum áherslu á að skapa virði og stöðugleika með sérsniðnum aðferðum. Með djúpri innsýn í rekstrarumhverfi þitt hjálpum við þér að ná framúrskarandi árangri.

Upplýsingatækni

Upplýsingatækniráðgjöf

Við veitum faglega ráðgjöf um allt sem tengist upplýsingatækni. Hvort sem það er stefnumótun, kerfismat, nýting skýjalausna eða val á birgjum, þá styðjum við þig við að finna bestu lausnirnar fyrir fyrirtækið þitt.

Sjá nánar →

Verkefnastjórnun

Við stjórnum upplýsingatækniverkefnum með upphaf og endi, allt frá hugmynd til fullnaðarafhendingar. Verkefnin geta verið af ýmsum toga, eins og innleiðing nýrra kerfa, uppfærslur á innviðum eða innleiðing nýrra ferla.

Sjá nánar →

Verkefnin

Hvort sem þú leitar að heildarlausn eða vilt einbeita þér að einstökum þáttum, þá bjóðum við upp á eftirfarandi þjónustu:

Úttekt á stöðu upplýsingatæknimála:

Ítarleg úttekt á núverandi stöðu upplýsingatæknimála hjá þínu fyrirtæki til að greina tækifæri til umbóta og betri nýtingar á tækni.


Endurhönnun og tilboðsgögn:

Aðstoð við að endurhanna upplýsingatæknilausnir, útbúa tilboðsgögn og finna bestu lausnirnar á markaði.


Lausnaleit og val á birgjum:

Styðjum þig við val á réttu birgjunum til að mæta upplýsingatæknikröfum fyrirtækisins.


Samþætting og rekstur:

Við leiðum innleiðingu og rekstur samþættra upplýsingatæknikerfa sem styðja við framtíðarsýn fyrirtækisins.


Öryggi og eftirlit:

Við tryggjum öryggi kerfa og gagna, með stöðugu eftirliti og uppfærslum.

Karl og kona eru að horfa á spjaldtölvu saman.

Rekstrar- og tækniþjónusta


  • Tæknileg aðstoð: Við veitum daglega aðstoð með símsvörun, úrvinnslu beiðna, og eftirlit með kerfum og búnaði til að halda rekstrinum gangandi án truflana.


  • Öruggar og sveigjanlegar lausnir: Hvort sem þú kýst skýjalausnir eða lausnir innanhúss, tryggjum við öryggi og hagkvæmni í rekstri.

Sjálfbær tækni, betri árangur


Uppgötvaðu hvernig okkar heilstæða stoðþjónusta getur hjálpað þínu fyrirtæki að ná árangri með réttri stefnumörkun og skýrri sýn til framtíðar.



Hafa samband
Share by: