Radix | Ger | Húsgagnahöllin | Betra bak | Dorma | Hästens
09.07.2023 Radix | Ger | Húsgagnahöllin | Betra bak | Dorma | Hästens
Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er það mikil áskorun að geta fylgst með og haldið í við þá þróun sem á sér stað upplýsingatækni og viðhaldi kerfa. Mikil sérþekking á ansi víðamiklu sviði er í raun ekki gerleg nema hjá stórfyrirtækjum og stofnunum.
Félag okkar hafði verið í innleiðingu á nýju viðskiptakerfi, Business Central og LS Central, sem því miður hafði ekki gengið hnökralaust fyrir sig. Staðan var vægast sagt orðin slæm þegar við kölluðuðum eftir fundi með Sessor. Ég vissi að verkefnið væri ærið og við í raun komin út í miðja á með nokkuð veigamikinn verslunarrekstur. Það létti mikið undir að upplifa þá faglegu nálgun og skilning Sessor á málunum eftir skamman tíma. Þegar búið var að greina heildarmyndina var aðgerðarplan sett í gang með forgangsröðun sem stýrt var af Sessor.
Það var ljóst um leið að þekking Sessor á upplýsingatækni og rekstri var veruleg. Við erum í krefjandi verslunarrekstri þar sem mikilvægt er að vera með góða yfirsýn og fyrirsjáanleika. Stundum er sagt er að “retail is detail” því höfum við áfram átt náið samstarf með Sessor þar sem við fengum þau til þess að stýra upplýsingatæknisviði okkar sem og koma að framkvæmdastjórn okkar félags. Það segir allt um trú okkar og traust á Sessor.
Við endurskipulagningu á samstæðu Radix og uppfærslu á upplýsingatæknikerfum stóðum við frammi fyrir ýmsum áskorunum því tengdu. Við fengum Sessor í lið með okkur og mynduðum tæknilega sterkt UT teymi…
Frá apríl 2019 hafa ráðgjafar Sessor aðstoðað okkur við endurskipulagningu á fjármáladeild félagsins með áherslu á fullnýtingu kerfa og breyttu verklagi. Frá því að samstarfið hófst hefur HK farið úr…
Vegna mikilla breytinga og nýrra verkefna þá stóð embætti Ríkislögreglustjóra frammi fyrir nýjum áskorunum í tölvumálum. Sessor var fengið að borðinu til að fara með hlutlausum hætti yfir núverandi stöðu…