Unicef – Bólusett heimsbyggð er allra hagur

Unicef – Bólusett heimsbyggð er allra hagur

Við hjá Sessor viljum ávallt sýna samfélagslega ábyrgð og styðjum því reglulega mikilvægt verkefni.  Við höfum því keypt 10 skammt af COVID-19 bóluefninu fyrir hvern starfsmann hjá okkur af Unicef og vitum að þannig kemst stuðningurinn á réttan stað.  Þess má geta að allir starfsmenn Sessor eru orðnir fullbólusettir og því viljum við hjálpa til.

Við hvetjum Íslensk fyrirtæki til að aðstoða við að stöðva útbreiðslu COVID-19 með því að styrkja Unicef.  Við erum jú í kapphlaupi við náttúruna og viljum reyna að koma í veg fyrir að veiran stökkbreytist og stofni bólusetningu í hættu.

Takk Unicef fyrir ykkar frábæra starf 

Frekari upplýsingar um hvernig styrkja má málefnið: https://unicef.is/covid