Stjórnarseta

RÁÐGJÖF OG ÞJÓNUSTA

STJÓRNARSETA

Á undanförnum árum hefur mikilvægi tæknilegrar þekkingar í stjórnum rekstraraðila vaxið mikið og í dag standa flest fyrirtæki frammi fyrir stafrænum umbreytingum með áherslu á hagræðingu í rekstri.

Við bjóðum fram faglega og árangursdrifna einstaklinga til stjórnarsetu þar sem tæknilegar áskoranir bíða úrlausna. Við höfum á að skipa einstaklingum sem búa yfir mikilli reynslu í rekstri og með framúrskarandi tæknilegan bakgrunn. Við sinnum flóknum tæknilegum verkefnum daglega og þekkjum vel leiðina að aukinni sjálfvirknivæðingu og nauðsynlegt jafnvægi tæknilegra lausna á móti einstaklingum.

Á undanförnum árum höfum við leitt fjölmarga rekstraraðila í gegnum stafrænar umbreytingar þar sem allt upplýsingatækniumhverfið hefur verið endurskipulagt heilstætt.

Fylltu út formið og við höfum samband.





    Fyrir hverja henta
    stjórnarmenn frá okkur?

    • Rekstraraðila sem standa frammi fyrir miklum fjárfestingum í tæknilegum innviðum
    • Rekstraraðila sem vilja hagræða í rekstri með fullnýtingu tæknilegra lausna
    • Rekstraraðila sem þurfa að yfirfara alla helstu verkferla í stoðþjónustum með hagræðingu í huga

    Hvenær ættir þú að leita til
    okkar varðandi stjórnarsetu?

    • Ef þú þekkir ekki vel tæknilega stöðu þín eða stendur frammi fyrir miklum tæknilegum breytingum.

    Hvar liggja áherslur okkar?

    • Að vera óháð og hugsa eingöngu um hagsmuni viðskiptavina okkar
    • Að bjóða aðeins fram einstaklinga sem búa yfir framúrskarandi reynslu og menntun
    • Stuðla að traustum og góðum samskiptum
    • Fagleg vinnubrögð
    • Heiðarleika, ástríðu og árangur