Stafrænn leiðtogi – Upplýsingatæknistjóri til leigu
STAFRÆNN LEIÐTOGI - UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI TIL LEIGU
Ykkar árangur - Okkar markmið
Með aukinni tæknivæðingu þurfa fyrirtæki að takast á við miklar áskoranir ef þau ætla að dafna og vera samkeppnishæf. Það er því mikilvægt að fyrirtæki byggi til framtíðar og hugi að stafrænni umbreytingu til að mæta kröfum markaðarins.
Með stafrænni umbreytingu er brýnt að rekstraraðilar tileinki sér bætt verklag, nýtingu réttra tæknilausna og virki mannauð. Sú vegferð gerir fyrirtæki móttækilegri fyrir þörfum viðskiptavina auk þess að þau eiga auðveldara með að laga sig að breyttu umhverfi og að skapa virði fyrir alla hagsmunaaðila.
Stafræn vegferð kallar á aukna sérþekkingu á sviði tæknimála og leiðtogahæfni. Stafrænn leiðtogi er sá aðili sem leiðir stafrænar umbreytingar áfram. Hans hlutverk er að hjálpa fyrirtækinu að skilja hvar það er statt og skilgreina hvernig fyrirtækið nær sínum markmiðum er snúa að stafrænni umbreytingu.
Við bjóðum stórum sem smáum rekstraraðilum upp á faglega og óháða alhliða þjónustu á sviði upplýsingatæknimála. Hvort sem þörf er á yfirgripsmikilli ráðgjöf eða minniháttar stuðningi, afmarkaðri verkefnastýringu eða heildarstjórnun upplýsingatæknimála, þá setjum við saman heildarlausnina sem svarar þínum þörfum og óskum.
Hver er ávinningurinn af upplýsingatæknistjórnun Sessor?
Eykur sjálfvirkni og rekstraröryggi
Einfaldar og styttir verkferla
Sparar handavinnu við endurtekinn innslátt á sömu upplýsingum
Fækkar lausnum eins og kostur er
Hámarksnýtir tækni og allar lausnir
Nær heildaryfirsýn yfir öll verkefni þannig að verkefnastjórnun og eftirlit með þeim verða skilvirkari
Eykur yfirsýn og bætir upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda
Hvenær ættir þú að leita til Sessor?
Þegar þörf er á stuðningi við tæknileg úrlausnarefni
Þegar þörf er á úttekt og ferlagreiningu fyrir stafræna umbreytingu
Þegar þörf er á afleysingu upplýsingatæknistjóra
Þegar þörf er á upplýsingatæknistjóra til lengri tíma
Þegar þörf er á stafrænum leiðtoga til að leiða stafræna umbreytingu þvert á fyrirtæki
Þegar setja þarf skýra framtíðarsýn og stefnu fyrir stafræna umbreytingu
Þegar þörf er á aðstoð við ákvörðunartöku, samningagerð og samskipti við birgja
Hver eru helstu verkefni í upplýsingatækni Sessor?
Úttekt á stöðu upplýsingatæknimála
Mótun stefnu í upplýsingatæknimálum og innleiðing hennar
Stýring á rekstri tæknilegra innviða
Lausnaleit, forval og val á birgjum
Faglegur og traustur stuðningur við stjórnendur
Sjálfvirknivæðing ferla
Mat á ferlum og tillögur að úrbótum
Samþætting lausna
Rekstur umbótaverkefna
Tæknivæðing á stoðþjónustum
Verkefnastjórnun
Samskipti við birgja
Áætlanagerð og kostnaðareftirlit
Önnur þjónusta sem við bjóðum?
Fjármála- og bókhaldsþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Hugbúnaðarlausnir
Upplýsingatækniráðgjöf
Úttekt á stöðu upplýsingatæknimála
Stjórnarseta
Verkefnastjórnun
Hvert er okkar hlutverk?
Ráðgjafar Sessor hafa margra ára reynslu í ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu á sviði fjármála og upplýsingatækni. Við endurskoðum alla ferla og umbreytum þeim stafrænt með því að nýta og samþætta lausnir sem henta þér og þínu félagi best. Meginmarkmið okkar er að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu þar sem hagsmunir viðskiptavinarins eru ávallt hafðir að leiðarljósi. Við leggjum einnig ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar stuðning og eftirfylgni við hvert skref á vegferðinni.