GILDI

Gildi Sessor endurspegla áherslur félagsins og skilgreina hvað við stöndum fyrir.

Við vitum að án heiðarleika getur ástríða ekki lifað og ástríða er lykillinn að góðum árangri.

HEIÐARLEIKI

  • Við vinnum á heiðarlegan hátt og
    lítum svo á að annað er aldrei
    valkostur
  • Við virðum trúnað og gagnsæi
    einkennir okkar störf
  • Við höldum okkur við staðreyndir,
    stöndum við gefin loforð og
    viðurkennum mistök
  • Við virðum lög og reglur

ÁSTRÍÐA

  • Við höfum ómælda trú á því að hægt sé að auka árangur rekstraraðila og gera störf skemmtilegri með framúrskarandi upplýsingatæknilausnum, skýru verklagi og virkjun starfsfólks
  • Við höfum mikla ástríðu fyrir þeim
    verkefnum sem við tökum okkur fyrir
    hendur
  • Við fjárfestum stöðugt í aukinni
    þekkingu sem eykur ástríðu okkar

ÁRANGUR

  • Við vitum að hvert verkefni þarf að
    skila raunverulegum ávinningi fyrir
    viðskiptavini okkar
  • Við vinnum að stöðugum umbótum
  • Við leggjum höfuðáherslu á að loka
    verkefnum
  • Við sýnum þrautseigju til að ná
    tilætluðum árangri