Við bjóðum rekstraraðilum upp á fjármála- og bókhaldsþjónustu með áherslu á fullnýtingu á tækni, skýru verklagi og hnitmiðuðum upplýsingum til stjórnenda í nær rauntíma. Með aðferðum okkar geta rekstraraðilar svo valið hvaða verkþættir eru útvistaðir.
Við aðstoðum rekstraraðila við alla helstu fjármálaferla. Fjármálastjórnun á borð við greiðslu reikninga helst áfram innandyra en með aðferðum okkar geta fjármálastjórar nú haft öflugt eftirlit með öllum þáttum í rekstrinum í rauntíma og greitt innlenda og erlenda reikninga fljótt og vel.
Hver er ávinningurinn af fjármála- og bókhaldsþjónustu Sessor?
Eykur sjálfvirkni og rekstraröryggi
Hratt ferli í allri vinnslu og styttri boðleiðir
Hagræðing til að viðhalda eða ná samkeppnisforskoti
Tryggir að rekstraraðilar fullnýti tækni eins og kostur er
Einfaldari og styttri verkferlar
Aukin og betri upplýsingagjöf með réttri uppsetningu og nýtingu vídda
Þú losnar við áhyggjur og umstang sem fylgir bókhaldi
Aukinn sveigjanleiki og meiri tími fyrir kjarnastarf
Hvenær ættir þú að leita til Sessor?
Þegar þörf er á afleysingu við bókhald
Þegar bókhaldið er eftirá
Þegar ekki er búið að innleiða pappírslaus viðskipti
Þegar starfsfólk er fast í óþarfa handavinnu
Þegar kerfi tala ekki nægilega vel saman
Þegar það það myndast álagspunktar í kringum mánaðarmót
Þegar útvista á fjármálum- og bókhaldi
Þegar skortu er á rauntímagögnum svo stjórnendur geti tekið upplýstar ákvarðanir
Þegar þörf er á stuðningi við tæknileg úrlausnarefni
Þegar þörf er á úttekt og ferlagreiningu fyrir stafræna umbreytingu
Þegar setja þarf skýra framtíðarsýn og stefnu fyrir stafræna umbreytingu
Hver eru helstu verkefni í fjármála- og bókhaldsþjónustu Sessor?
Móttaka og meðhöndlun allra reikninga
Færsla bókhalds
Afstemming bókhalds
Eftirlit
Reikningagerð
Innlestur bókhaldsgagna
Skráning í rafrænt uppáskriftarferli
Launavinnsla
Aðstoð og ráðgjöf
Stjórnendaupplýsingar
Kostnaðareftirlit
Áætlanagerð
Önnur þjónusta sem við bjóðum?
Upplýsingatækniráðgjöf
Rekstrarráðgjöf
Hugbúnaðarlausnir
Stafrænn leiðtogi til leigu
Upplýsingatæknistjórnun
Úttekt á stöðu upplýsingatæknimála
Stjórnarseta
Verkefnastjórnun
Hvert er okkar hlutverk?
Ráðgjafar Sessor hafa margra ára reynslu í ráðgjöf og þjónustu á sviði fjármála og upplýsingatækni. Við endurskoðum alla ferla og umbreytum þeim stafrænt með því að nýta og samþætta lausnir sem henta þér og þínu félagi best. Meginmarkmið okkar er að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu þar sem hagsmunir viðskiptavinarins eru ávallt hafðir að leiðarljósi. Við leggjum einnig ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar stuðning og eftirfylgni við hvert skref á vegferðinni.