Stafrænar umbreytingar hjá UMFA

Stafrænar umbreytingar hjá UMFA

Afturelding og Sessor hafa undirritað samning þess efnis að Sessor leiði félagið í gegnum stafrænar umbreytingar. Verkefnið er nokkuð umfangsmikið og felur í sér innleiðingu á nýjum viðskiptahugbúnaði, breyttu verklagi, öflugri stjórnendasýn ásamt öðrum þáttum.

Áður en gengið var til samninga um heildarverkefnið framkvæmdi starfsfólk Sessor úttekt á stöðu á stoðþjónustu félagsins ásamt tæknilega umhverfinu. Úttektin leiddi í ljóst að mikil tækifæri lágu í mögulegum breytingum sem myndu draga talsvert úr vinnu og hækka þjónustustig við sjálfboðaliða sem vinna í þágu félagsins.

Lykilþættirnir í stafrænni umbreytingu hjá Aftureldingu eru fjölmargir en eftirfarandi þættir þóttu mikilvægastir:

  • Fullnýting stafrænna lausna
  • Heilstæð endurskoðun viðskiptaferla
  • Sjálfvirknivæðing og stöðugt flæði gagna
  • Endurþjálfun og virkjun starfsfólks
  • Samþættingar upplýsingakerfa
  • Sjálfvirk upplýsingagjöf og eftirlit

Kristrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Aftureldingar:

Aðalstjórn Aftureldingar ákvað að fá Sessor til að greina fjármálaferla og upplýsingatæknimál félagsins. Á grundvelli þeirra vinnu hefur verið ákveðið að ganga til samstarfs um innleiðingu á nýjum viðskiptahugbúnaði. Samhliða því verður farið í endurhögun á verkferlum með það að markmiði að nýta tæknilegar lausnir til auka sjálfvirkni og einfalda verkferla til að auka skilvirkni og gæði. Við erum sannfærð um að sérþekking og reynsla Sessor í upplýsingatækni, fjármálum og verkefnastýringu muni skila félaginu miklum ávinningi til framtíðar og færa félagið í fremstu röð varðandi þjónustu við félagsmenn og starfsumhverfi á skrifstofu félagsins.“

Brynjar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Sessor:

„Á undanförnum árum höfum við rannsakað möguleg áhrif stafrænna umbreytinga á rekstraraðila. Niðurstöður sýna að með stafrænum umbreytingum á stoðþjónustunum íþróttafélaga eyst rekstraröryggi, neikvæð umhverfisáhrif minnka og fjármunir fara í hærra hlutfalli í íþróttastarfsemina sjálfa. Það er síðan einkar ánægjulegt að umtalsverð hagræðingu næsta á sama tíma og við bætum þjónustu við hagaðila. Að æskufélagið mitt velji þessa vegferð með okkur er einkar ánægjulegt.”

Á mynd með fréttinni er stýrihópur verkefnisins (frá vinstri):  Sigurður Rúnar Magnússon gjaldkeri aðalstjórnar, Hrannar Erlingsson ráðgjafi, Svava Sigurðardóttir fjármálafulltrúi, Kristrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og Brynjar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri.

Hvað er stafræn umbreyting?

Stafræn umbreyting (e. digital transformation) er leið til framþróunar með því að taka upp stafrænar lausnir með það að markmiði að draga úr kostnaði en á sama tíma að bæta þjónustustig og auka upplýsingagjöf til hagaðila. Með nýjum tæknilegum lausnum má skipta út jafnt stafrænum sem og handvirkum ferlum fyrir mun sjálfvirkari stafræna ferla. Að verða pappírslaus og að ná stafrænum viðskiptaþroska er eitthvað sem íþróttafélög þurfa að huga að enda hagkvæmara og umhverfisvænna verklag en það sem í notkun er í dag. Það má því segja að stafræn umbreyting eigi sér stað þegar rekstraraðilar byrja að nýta sér stafræna tækni og gögn til að auka ávinning sinn, breyta eða skipta út ferlum þannig að stafræn tækni er nýtt og ýta þannig undir stafræn viðskipti.