Power BI er öflug lausn frá Microsoft til að draga saman gögn og birta á ýmsan hátt í mælaborðum og skýrslum. Með Microsoft Power BI er hægt að útbúa mælaborð með stjórnendaupplýsingum sem hjálpar til við að fá yfirsýn yfir reksturinn. Kerfið er svo aðgengilegt gegnum vafra eða beint í farsímann.
Power BI býður upp á tengingar við mikinn fjölda viðskiptakerfa frá helstu hugbúnaðarframeiðendum heims og hefur innbyggð sniðmát fyrir margskonar framsetningu.
Afhverju Power BI?
Lausn sem hjálpar til að auka framleiðni
Auðvelt að tengja saman gögn og setja upp mælaborð eða eftirlit með verkferlum
Öflugt, notendavænt og hægt að sérskrifa mæla
Gagnagreinendur geta nýtt sér samþættingu við R
Sameinar stýringu gagna og öryggi
Getur fellt inn flísar í sérsniðnu PowerApps forritum
Aðgengilegt hvaðan sem er með sjálfsafgreiðslu
Power BI er leiðandi skv. Gartner fyrir greiningar- og viðskiptagreind.
Áskriftarleiðir
Hægt er að nota fría útgáfu af Power BI en þá er ekki hægt að deila gögnunum.
Almennt er valið milli tveggja leiða:
Power BI Pro leyfi
Power BI Premium leyfi
Upplýsingar og verð frá Microsoft má finna hér.Frekari upplýsingar varðandi leyfi og þjónustu veita ráðgjafar okkar.
Hvers vegna ættir þú að leita til Sessor?
Sessor býður rekstraraðilum uppá fjölbreytta óháða þjónustu. Við aðstoðum við val á lausnum og birgjum.
Viðskiptavinir okkar hafa verið ákaflega ánægðir með þjónustuna enda líklega eitt reynslumesta ráðgjafarteymi á sviði viðskiptalausna á landinu sem hugsar bara um árangur viðskiptavina okkar.
Helstu áherslur okkar eru:
Erum óháð og þekkjum mögulega birgja, sérkerfin og aðrar lausnir sem gætu hentað
Aðstoðum við að velja réttar lausnir og tryggjum fullnýtingu á þeim
Byggjum upp skýrt verklag og aga
Stöndum vel að þjálfun starfsfólks
Komum upp stafrænum stoðþjónustum með stöðugu flæði